143. löggjafarþing — 75. fundur,  13. mars 2014.

umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu dregin til baka.

340. mál
[22:46]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég tek viljandi eins lítinn tíma og ég mögulega get til að segja þetta: Ég hvet virkilega, í alvörunni, hæstv. þingmenn stjórnarmeirihlutans til að taka þátt í þessum umræðum. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að taka þátt hérna áðan, ég kann mjög að meta það þegar umræður verða og hvet enn og aftur hv. þingmenn til þátttöku.