143. löggjafarþing — 75. fundur,  14. mars 2014.

umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu dregin til baka.

340. mál
[02:39]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Eins og forseti sagði áðan lá fyrir þessi ósk frá hv. þm. Árna Páli Árnasyni. Sú ósk var ljós þeim ráðherrum sem hv. þingmaður vék máli sínu að. Forseti vekur hins vegar athygli á því að í salnum er hæstv. utanríkisráðherra og eins er hæstv. menntamálaráðherra skráður í hús.