143. löggjafarþing — 81. fundur,  26. mars 2014.

vísun skýrslna til nefnda.

[15:02]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Með bréfi dagsettu 24. mars sl. hefur forseti óskað eftir því, samanber ákvæði 8. töluliðar 1. mgr. 13. gr. þingskapa, um stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, að hún fjalli um eftirtaldar skýrslur Ríkisendurskoðunar: Skýrslu um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga og eftirlit ríkisins, skýrslu um úthlutun styrkja úr Rannsóknasjóði, skýrslu um sorpbrennslur með undanþágu frá tilskipun ESB og skýrslu um samgönguframkvæmdir.