143. löggjafarþing — 83. fundur,  27. mars 2014.

greiðsludráttur í verslunarviðskiptum.

338. mál
[17:20]
Horfa

iðnaðar- og viðskiptaráðherra (Ragnheiður E. Árnadóttir) (S):

Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um greiðsludrátt í verslunarviðskiptum á þskj. 633, í máli nr. 338.

Frumvarpið innleiðir ákvæði tilskipunar 2011/7/EB frá 16. febrúar 2011 um átak gegn greiðsludrætti í verslunarviðskiptum. Jafnframt kallar innleiðing tilskipunarinnar á breytingar á lögum um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001. Tilskipunin sem hér er innleidd leysir af hólmi tilskipun 2000/35/EB með sama heiti, en hún var tekin upp í íslenskan rétt með lögum um vexti og verðtryggingu, nr. 38/2001, samanber m.a. III. kafla þeirra laga um dráttarvexti.

Greiðsludráttur í verslunarviðskiptum hefur veruleg áhrif á afkomu og veltu fyrirtækja, þá sérstaklega lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Að auki dregur greiðsludráttur úr samkeppnishæfni og virkni markaðarins.

Með frumvarpinu eru að meginstefnu til settar fram skýrar og almennar reglur um greiðslufrest í verslunarviðskiptum, auk þess sem settar eru fram sérreglur fyrir opinbera aðila annars vegar og almenn fyrirtæki í verslunarviðskiptum hins vegar. Þá er gert ráð fyrir nýmæli sem eru innheimtubætur og fela í sér fasta bótagreiðslu vegna innheimtukostnaðar, auk þess sem sérstaklega er tiltekið í frumvarpinu hvaða samningsskilmálar í verslunarviðskiptum muni teljast bersýnilega ósanngjarnir.

Frumvarpið er bundið við greiðslur sem eru þóknun fyrir verslunarviðskipti og gilda ákvæði þess ekki um neytendur. Sérstaklega er tiltekið að frumvarpið gildi ekki um kröfur sem nauðasamningur tekur til, kröfur sem falla undir greiðslustöðvun eða um kröfur sem mál hefur verið höfðað um á grundvelli laga um gjaldþrotaskipti. Ljóst má vera að frumvarpið mun leiða til bættra viðskiptahátta, bæði hvað varðar viðskipti opinberra aðila og eins hvað varðar verslunarviðskipti milli fyrirtækja og lögaðila, auk þess sem leiða má að því líkur að skýrari og skarpari reglur um verslunarviðskipti muni jafna samkeppnisstöðu fyrirtækja, sérstaklega þeirra sem hafa átt í viðskiptum við ríkið og opinbera aðila.

Ef við skoðum nánar meginefni frumvarpsins má segja að í frumvarpinu felist helst eftirfarandi:

Í verslunarviðskiptum milli fyrirtækja eru settar kröfur um tiltekið hámark á greiðslufrest sem veittur er þegar samningur um greiðslu fyrir vöru eða þjónustu er til staðar. Gert er ráð fyrir að mest skuli semja um 60 daga greiðslufrest, en þó er heimilað að semja um lengri frest að því gefnu að slíkt sé ekki bersýnilega ósanngjarnt gagnvart kröfuhafa. Í þeim tilfellum þegar fyrirtæki hafa ekki gert með sér samning um greiðslur fyrir vörur eða þjónustu er mögulegt að beita fyrir sig ákvæðum laga um vexti og verðtryggingu, um töku dráttarvaxta að liðnum 30 dögum frá því að sannarlega var krafist greiðslu.

Þá eru settar strangari reglur um verslunarviðskipti hins opinbera og greiðslufrestur takmarkaður við 30 daga. Mögulegt er að fá undanþágu frá þessari reglu þegar um er að ræða opinbera aðila sem starfa á sviði heilbrigðisþjónustu eða starfsemi opinbers aðila er að nær öllu leyti í samkeppni á markaði. Er mest mögulegt að semja um greiðslufrest upp á 60 almanaksdaga. Röksemdir fyrir þessari sérreglu um opinbera aðila eru m.a. þær að opinberir aðilar njóti öruggari, fyrirsjáanlegri og samfelldari tekjuleiða en fyrirtæki og geti auk þess aflað fjármögnunar á hagstæðari kjörum.

Að auki er í frumvarpinu að finna heimild til að krefjast fastrar bótagreiðslu vegna innheimtukostnaðar, svokallaðra innheimtubóta, sem nema 6.700 kr., eða fjárhæð sem samsvarar 40 evrum. Nánar verður kveðið á um útfærslu þessarar heimildar í reglugerð, en gert er ráð fyrir að innheimtubætur komi til frádráttar öðrum kostnaði af innheimtuaðgerðum, svo sem fruminnheimtu, milliinnheimtu eða löginnheimtu.

Til viðbótar er í frumvarpinu tiltekið hvaða skilmálar í verslunarviðskiptum skuli teljast vera bersýnilega ósanngjarnir. Er þar átt við samningsskilmála sem undanskilja vexti vegna greiðsludráttar og auk þess er gengið út frá því að skilmálar sem undanskilja innheimtubætur teljist bersýnilega ósanngjarnir nema sýnt sé fram á annað.

Þá er fjallað um sjónarmið sem hafa má til hliðsjónar við mat á því hvort samningsákvæði skulu teljast bersýnilega ósanngjörn.

Rétt er auk þess að geta þess að frumvarpið kemur ekki í veg fyrir að aðilar í verslunarviðskiptum semji um að greiða skuldir sínar með afborgunum samkvæmt greiðsluáætlun og er í raun frekar hvatt til þess en láta greiðsludrátt verða að veruleika. Skal þá fara með hverja gjaldfallna greiðslu í samræmi við frumvarpið þannig að greiðslufrestur og dráttarvextir samkvæmt ákvæðum þess eigi við.

Að lokum gerir frumvarpið ráð fyrir hækkun vanefndaálags við útreikning dráttarvaxta þegar um greiðsludrátt í verslunarviðskiptum er að ræða, um er að ræða viðbót við ákvæði 6. gr. laga um vexti og verðtryggingu þannig að í tilfelli verslunarviðskipta verði vanefndaálag átta hundraðshlutar en ekki sjö eins og er í núgildandi lögum. Hér er um að ræða lágmarkskröfu um hlutfalls vanefndaálags, en aðilar geta samið um hærri prósentu.

Dráttarvextir eru samtala grunns dráttarvaxta sem í dag er 6% samkvæmt ákvörðun Seðlabankans og vanefndaálags sem er 7% samkvæmt lögum um vexti og verðtryggingu. Eru dráttarvextir af peningakröfum því nú 13%, en frumvarpið gerir ráð fyrir að dráttarvextirnir verði 14% hvað varðar verslunarviðskipti.

Grundvallaratriði með þessu frumvarpi eru bættir viðskiptahættir, ekki síst af hálfu ríkisins, auk skýrari og betri úrræða fyrir kröfuhafa til þess að fá greiðslu. Slíkum reglum ber að fagna, en þær munu líklegast bæta lausafjárstöðu fyrirtækja, styðja við verslunarviðskipti almennt og jafna samkeppnisstöðu aðila á markaði.

Þá eru kröfur þær sem gerðar eru til opinberra aðila í samræmi við reglur Ríkiskaupa um að greitt skuli fyrir vörur og þjónustu innan 30 daga frá dagsetningu reiknings.

Gert er ráð fyrir að frumvarpið leiði aðeins til verulega takmarkaðs kostnaðar fyrir bæði lögaðila og opinbera aðila þar sem flest greiðslukerfi sem eru í notkun í dag munu ráða við breytingar í samræmi við frumvarpið. Slíkar breytingar er hægt að framkvæma án tilkostnaðar. Hér er á ferðinni tilskipun sem nauðsynlegt er að taka upp í íslenskan rétt og mun frumvarpið stuðla að betri lausafjárstöðu fyrirtækja og virkari verslunarviðskiptum.

Þá er rétt að ítreka að með frumvarpinu er ekki verið að girða fyrir samningsfrelsi einkaaðila í verslunarviðskiptum, heldur eru hér á ferðinni viðmiðunarreglur sem eru frávíkjanlegar að tilteknum skilyrðum uppfylltum.

Ég tel að hér sé á ferðinni þýðingarmikið frumvarp sem mun leiða til virkari verslunarviðskipta, betra greiðsluflæðis og bættra viðskiptahátta.

Herra forseti. Að lokinni þessari umræðu legg ég til að frumvarpinu verði vísað til hv. efnahags- og viðskiptanefndar til umfjöllunar og til 2. umr.