143. löggjafarþing — 90. fundur,  2. apr. 2014.

séreignarsparnaður og ráðstöfun hans til greiðslu húsnæðislána og húsnæðissparnaðar.

484. mál
[20:26]
Horfa

Elsa Lára Arnardóttir (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Katrínu Júlíusdóttur fyrir andsvarið. Ég ætla bara að koma hreint og beint fram, ég hef ekki hugsað út í akkúrat þetta atriði og þekki það ekki nógu vel. Ég ætla að kynna mér það til að geta tekið afstöðu til þess hvað þetta þýðir fyrir fólk. Ég get í raun ekki svarað því frekar.

Mér finnst ekki gott ef þetta verður ekki þeim sem á þurfa að halda til góða, ég mun kynna mér málið og taka afstöðu til þessara hluta.