143. löggjafarþing — 109. fundur,  13. maí 2014.

leiðrétting verðtryggðra fasteignaveðlána.

485. mál
[20:57]
Horfa

Frsm. meiri hluta efh.- og viðskn. (Frosti Sigurjónsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Hv. þingmaður vill bera það saman við þjófnað að hér sé farið í leiðréttingu og ekki sé hægt að verða við þeim kröfum að gefa rýmri frest en til fjögurra ára því fólki sem er búsett erlendis og á hugsanlega einhvern rétt samkvæmt þessu. Mér finnst slíkt tal dæma sig sjálft og hef ekki frekari orð um það.