leiðrétting verðtryggðra fasteignaveðlána.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir efnismikla og málefnalega ræðu. Ég vildi spyrja hv. þingmann, af því að í öðrum ríkjum eftir kreppu er verðtrygging kannski ekki eins útbreidd og hér á landi, ég vildi aðeins heyra skoðun hennar á verðtryggingunni. Í öðrum ríkjum verða oft neikvæðir raunvextir, mjög lágir raunvextir, eftir kreppu. Þannig brenna skuldirnar niður. Ef þær lækka ekki fer oft af stað peningaprentun og annað slíkt. Við sjáum í Japan og í Bandaríkjunum og víðar að þá reyna menn að prenta peninga til að lækka skuldir allra. Hér er þetta ekki hægt, hér sitjum við uppi með öll heimilin með verðtryggðar skuldir. Og hvað er til ráða? Er ekki hugsanlegt að einhverja efnahagsaðgerð þurfi líka til á Íslandi eins og í öðrum löndum til að koma efnahagslífinu í gang aftur og dreifa áfallinu jafnt?