143. löggjafarþing — 118. fundur,  16. maí 2014.

ákvörðun EES-nefndarinnar nr. 164/2013 um breytingu á II. viðauka við EES-samninginn.

275. mál
[12:48]
Horfa

Frsm. utanrmn. (Guðlaugur Þór Þórðarson) (S):

Virðulegi forseti. Eins og kemur fram er hér um að ræða tilskipun sem snýr að öryggi líffæra til ígræðslu.

Vel hefur verið farið yfir þetta í hv. utanríkismálanefnd. Það er ljóst að þetta mun ekki hafa teljandi áhrif á útgjaldaramma landlæknis en tillagan skýrir sig sjálf og sömuleiðis nefndarálitið sem fylgir með og er öllum aðgengilegt.

Nefndin leggur það til, virðulegi forseti, að tillagan verði samþykkt.