143. löggjafarþing — 118. fundur,  16. maí 2014.

frestun á fundum Alþingis.

599. mál
[16:37]
Horfa

forsætisráðherra (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (F):

Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar um samþykki til frestunar á fundum Alþingis samkvæmt 1. mgr. 23. gr. stjórnarskrárinnar. Tillögugreinin orðast svo:

„Alþingi ályktar að veita samþykki til þess að fundum þingsins verði frestað frá 16. maí 2014 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til 9. september 2014.“

Herra forseti. Tillagan skýrir sig sjálf.