143. löggjafarþing — 125. fundur, 18. júní 2014.
frestun á fundum Alþingis.
617. mál
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar um samþykki til frestunar á fundum Alþingis samkvæmt 1. mgr. 23. gr. stjórnarskrárinnar.
Tillagan er svohljóðandi:
„Alþingi ályktar að veita samþykki til þess að fundum þingsins verði frestað frá 18. júní 2014 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til 9. september 2014.“
Tillagan skýrir sig sjálf.