143. löggjafarþing — 125. fundur,  18. júní 2014.

þingfrestun.

[23:39]
Horfa

forsætisráðherra (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (F):

Forseti Íslands gjörir kunnugt:

„Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta fundum Alþingis, 143. löggjafarþings, frá 18. júní 2014 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til 9. september 2014.

Gjört á Bessastöðum, 18. júní 2014.

Ólafur Ragnar Grímsson.

___________________________

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson.

 

Forsetabréf um frestun á fundum Alþingis.“

Samkvæmt þessu umboði og með vísan til samþykkis Alþingis lýsi ég því yfir að fundum Alþingis, 143. löggjafarþings, er frestað og ítreka óskir um að þingmenn eigi gleðilegt sumar.