144. löggjafarþing — 1. fundur,  9. sept. 2014.

afbrigði um sætaúthlutun.

[16:07]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Leita þarf afbrigða frá þingsköpum, þ.e. lokamálsgrein 3. gr. þingskapa, um hvernig skuli hluta um sæti þingmanna. Samkomulag er um það milli forseta og formanna þingflokka að leggja til að tekin verði frá sæti næst inngangi fyrir formenn þingflokka en þeir dragi innbyrðis um þessi sæti. Samkvæmt þessu hefur Helgi Hrafn Gunnarsson sæti 44, Helgi Hjörvar sæti 23, Ragnheiður Ríkharðsdóttir sæti 8, Róbert Marshall sæti 45, Sigrún Magnúsdóttir sæti 22 og Svandís Svavarsdóttir sæti 7.

Enn fremur hefur orðið samkomulag um hvernig hluta skuli um sæti þingmanna þannig að hv. þm. Steinunn Þóra Árnadóttir geti fengið sæti sem henni hentar sérstaklega og fær hún sæti 14.

Skoðast þessi afbrigði samþykkt ef enginn hreyfir andmælum.