144. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[11:59]
Horfa

forsætisráðherra (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (F):

Virðulegur forseti. Eins og ég kom aðeins inn á áðan er það ekki í samræmi við þingsköp að ræða allt önnur mál en þau sem eru á dagskrá hverju sinni hér í þinginu. Forseta ber reyndar að minna þingmenn á það þegar þeir fara óeðlilega mikið út fyrir efnið.

Húsafriðun og græna hagkerfið heyra ekki undir dómsmálahluta innanríkisráðuneytisins og eru því ekki til umræðu undir þessum lið.