144. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[12:00]
Horfa

forsætisráðherra (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (F):

Virðulegur forseti. Vissulega hef ég áhuga á að ræða þessi mál og upplýsa um þau ekki síður en löggæslu- og dómsmál, en þetta eru ekki þau mál sem eru til umræðu og við verðum að leitast við að fylgja þingsköpum ef við viljum að gagn sé að umræðum hér á Alþingi og þær skili tilætluðum árangri.