144. löggjafarþing — 4. fundur,  12. sept. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[12:11]
Horfa

forsætisráðherra (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (F):

Virðulegur forseti. Ég get ekki annað en endurtekið það sem ég hef áður sagt: Við verðum að fylgja þingsköpunum og sýna Alþingi þá virðingu að ræða þau mál sem eru á dagskrá hverju sinni. Einungis þannig skilar umræðan árangri. Einungis þannig er hún upplýsandi og gagnleg við ákvarðanatöku.