fjárlög 2015.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin. Mér finnst það einmitt góð hugmynd að færa yfirstjórnina yfir til Byggðastofnunar, að við séum ekki með svona yfirbyggingu úti um allt.
Mig langar aðeins að spyrja að lokum út í Hafrannsóknastofnun þar sem fjárframlög eru nú aðeins aukin, og veitir ekki af, hvernig staða þeirrar stofnunar er á Akureyri. Ég hef heyrt áhyggjur af því að hún sé hægt og sígandi að sogast í burtu. Yfirmaðurinn flutti burt og hefur ekki fengist staðfest hvort það eigi að ráða í þá stöðu aftur. Ég hef einnig heyrt að þessi stofnun sé gríðarlega mikilvæg fyrir auðlindadeild Háskólans á Akureyri og jafnvel mikilvægari sem stofnun en Fiskistofa vegna þess að þarna fara fram rannsóknir sem tengjast háskólanum. Þarna verður samþætting á þessari rannsóknastofnun og svo háskólanum og kennslu. Það væri gott að fá svör við því hvernig staða Hafrannsóknastofnunar á Akureyri er.