144. löggjafarþing — 9. fundur,  22. sept. 2014.

nauðungarsala.

7. mál
[16:23]
Horfa

Unnur Brá Konráðsdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Mig langar að koma hér upp til þess að þakka þingheimi fyrir skjót vinnubrögð í þessu mikilvæga máli. Mig langar að vekja athygli á því að allir þingmenn í allsherjar- og menntamálanefnd eru á því nefndaráliti sem hér liggur fyrir, tveir með fyrirvara sem þeir gera hér grein fyrir, sýnist mér.

Að öðru leyti hvet ég einfaldlega þingmenn til að styðja þetta ágæta mál sem er gríðarlega mikilvægt að við klárum í dag.