144. löggjafarþing — 10. fundur,  22. sept. 2014.

Ábyrgðasjóður launa.

105. mál
[16:31]
Horfa

félags- og húsnæðismálaráðherra (Eygló Harðardóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 88/2003, um Ábyrgðasjóð launa. Frumvarpið er lagt fram í annað sinn en það var áður lagt fram á [Kliður í þingsal.] 143. löggjafarþingi án þess að fjallað hafi verið um það efnislega á því þingi. — Ég held að ég ætti ekki að gera athugasemdir við það að fólk sé að tala hér í sal í ljósi þess sem ég gerði áðan.

Frumvarp þetta er lagt fram í þeim tilgangi að tryggja fullnægjandi innleiðingu tilskipunar 2008/94/EB, um vernd til handa launþegum verði vinnuveitandi gjaldþrota. Eftirlitsstofnun EFTA hefur gert athugasemd við 5. gr. laganna þar sem stofnunin telur að ríkjum sé óheimilt að setja fram skilyrði um virka atvinnuleit í uppsagnarfresti svo krafa um bætur vegna launamissis vegna slita á ráðningarsamningi njóti ábyrgðar sjóða eins og Ábyrgðasjóðs launa.

Máli sínu til stuðnings vísar Eftirlitsstofnun EFTA til túlkunar Evrópudómstólsins í máli frá árinu 2010 sem gengur undir heitinu Ardennen. Samkvæmt tilskipuninni skulu aðildarríki tryggja launamanni lágmarksvernd þegar vinnuveitandi verður gjaldþrota. Aðildarríkjunum er síðan heimilt að takmarka ábyrgðir sínar við nánar tilgreindan tíma sem umræddar kröfur hafa orðið til á og setja hámark á fjárhæð þeirra krafna sem njóta ábyrgðar. Þær undanþágur eru taldar vera tæmandi í tilskipuninni og ber að túlka þær þröngri lögskýringu. Þar af leiðandi komst Evrópudómstóllinn að þeirri niðurstöðu að ríkjum væri óheimilt að takmarka þá vernd sem tilskipuninni er ætlað að veita með því skilyrði að launamenn hafi skráð sig sem atvinnuleitendur í kjölfar þess að þeir misstu störf sín vegna gjaldþrots vinnuveitanda.

Að höfðu samráði við Alþýðusamband Íslands, Samtök atvinnulífsins og Vinnumálastofnun er með frumvarpi þessu þannig lagt til að fellt verði brott skilyrði b-liðar 5. gr. laganna um virka atvinnuleit í uppsagnarfresti svo að krafa um bætur vegna launamissis vegna slita á ráðningarsamningi njóti ábyrgðar Ábyrgðasjóðs launa. Í stað þess er lagt til að fyrrum launamenn hjá vinnuveitendum sem hafa verið úrskurðaðir gjaldþrota eigi rétt á bótum vegna launamissis í allt að þrjá mánuði vegna slita á ráðningarsamningi enda hafi þeir ekki ráðið sig til starfa hjá öðrum atvinnurekanda eða hafið sjálfstæðan rekstur á því tímabili.

Greiðslum frá Ábyrgðasjóði launa er ætlað að tryggja launafólki lágmarksvernd á uppsagnarfresti þegar vinnuveitandi verður gjaldþrota en tilgangur uppsagnarfrests er meðal annars að gera launamanni kleift að leita sér að öðru starfi eftir að hafa verið sagt upp störfum hjá fyrri vinnuveitanda. Sú meginregla gildir að launamanni hjá gjaldþrota vinnuveitanda ber að takmarka tjón sitt með því að leita sér að öðru starfi. Almennt gildir að fái launamaður annað starf á uppsagnarfresti og geti þegar hafið störf falla greiðslur í uppsagnarfresti frá fyrri vinnuveitanda niður samhliða því að ekki er lengur krafist vinnuframlags hans. Er það jafnframt venja að í tilvikum þegar ekki er krafist vinnuframlags launamanns í uppsagnarfresti þá falla greiðslur vinnuveitanda niður fái launamaður annað launað starf áður en frestinum lýkur. Þykir því eðlilegt að sömu reglur eigi við þegar Ábyrgðasjóður launa greiðir bætur vegna launamissis í uppsagnarfresti enda er tilgangurinn að mæta launamissi þann tíma.

Hins vegar í þeim tilvikum er laun fyrir starfið hjá hinum gjaldþrota vinnuveitanda voru hærri en launin fyrir hið nýja starf er lagt til að sjóðurinn ábyrgist launamismuninn, en þó aldrei hærri fjárhæð en sem nemur mismuninum á lægri laununum og hámarksgreiðslu samkvæmt 1. mgr. 6. gr. laganna þar sem sjóðurinn ábyrgist ekki hærri fjárhæð en þar er kveðið á um hverju sinni.

Eins og kemur fram í athugasemdum við frumvarpið hefur það verið mjög fátítt að kröfuhöfum hafi verið synjað um greiðslu bóta vegna launamissis í þrjá mánuði vegna slita á ráðningarsamningi á grundvelli þess að viðkomandi hafi ekki getað sýnt fram á með ótvíræðum hætti að hann hafi verið í virkri atvinnuleit þann tíma. Því er það mat fjármála- og efnahagsráðuneytis að frumvarpið muni hafa lítil áhrif á útgreiðslur úr Ábyrgðasjóði launa.

Að lokinni þessari umræðu vil ég leggja til að frumvarpinu verði vísað til hv. velferðarnefndar. Ég vil líka nefna að það er ánægjulegt og náttúrlega enn eitt merki þess hvað aðstæður eru að breytast mikið í efnahagslífinu að dregið hefur úr kröfum á Ábyrgðasjóð launa.