144. löggjafarþing — 13. fundur,  25. sept. 2014.

hlutafélög o.fl.

12. mál
[14:27]
Horfa

Vilhjálmur Bjarnason (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég ætla að játa hér og nú að ég veit ekki um slík úrræði. Það er sjaldgæft að þingmenn komi í pontu og segi: Ég bara veit það ekki. Ég ætla að vera svo lítillátur að segja að ég veit ekki hvort þau úrræði eru til eða hvort þau þurfa yfir höfuð að vera til.

Ég hef lokið máli mínu.