144. löggjafarþing — 17. fundur,  9. okt. 2014.

varamenn taka þingsæti.

[10:34]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Borist hefur bréf frá 12. þm. Suðvest., Birgittu Jónsdóttur, um að hún geti ekki sótt þingfundi á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Pírata í kjördæminu, Björn Leví Gunnarsson. Björn Leví Gunnarsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa að nýju.

Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Framsóknarflokksins, Sigrúnu Magnúsdóttur, um að Gunnar Bragi Sveinsson, 1. þm. Norðvest., geti ekki sinnt þingmennsku á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi sem varamaður fyrir hann 2. varamaður Framsóknarflokksins í kjördæminu, Anna María Elíasdóttir. 1. varamaður Framsóknarflokksins í kjördæminu situr nú sem varamaður á Alþingi.

Kjörbréf Önnu Maríu Elíasdóttur hefur þegar verið rannsakað og samþykkt en hún hefur ekki tekið áður sæti á Alþingi og ber því að undirskrifa drengskaparheit að stjórnarskránni.

[Anna María Elíasdóttir undirritaði drengskaparheit að stjórnarskránni.]