144. löggjafarþing — 18. fundur,  14. okt. 2014.

áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða.

244. mál
[17:32]
Horfa

Forseti (Steingrímur J. Sigfússon):

Forseti hefur heyrt mismunandi sjónarmið um til hvaða nefndar þetta mál skuli ganga. Það er rétt að taka fram að Alþingi hefur ekki tekið afstöðu til þess sjálft en það er, eins og þingmönnum er ljóst, í höndum Alþingis að ákveða til hvaða nefndar máli er vísað, gjarnan í góðu samkomulagi ef slíkt er í boði, en ef fleiri en ein tillaga eru uppi verður það útkljáð með atkvæðagreiðslu.