144. löggjafarþing — 18. fundur,  14. okt. 2014.

sjúkratryggingar.

242. mál
[19:15]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég sé ekki miklar breytingar á efni 1. gr. Er það rétt skilið hjá mér að þetta sé í rauninni bara breyting á athugasemdum frumvarpsins? Það er smávægileg orðalagsbreyting á efni 1. gr. en hún er í sjálfu sér efnislega nákvæmlega eins og hún var áður eftir því sem ég sé best.