144. löggjafarþing — 19. fundur,  15. okt. 2014.

meðferð sakamála.

103. mál
[16:33]
Horfa

Frsm. allsh.- og menntmn. (Líneik Anna Sævarsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti frá allsherjar- og menntamálanefnd um frumvarp til laga um breytingu á lögum um meðferð sakamála, nr. 88 frá 12. júní 2008, með síðari breytingu.

Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund Bryndísi Helgadóttur frá innanríkisráðuneytinu.

Frumvarpið gerir ráð fyrir að stofnun sérstaks embættis héraðssaksóknara verði frestað til 1. janúar 2016 en með lögum um meðferð sakamála sem tóku gildi 1. janúar 2009 var gert ráð fyrir því að stofnað yrði embætti héraðssaksóknara sem yrði nýtt stjórnsýslustig innan ákæruvaldsins. Vegna niðurskurðar hefur stofnun embættisins verið frestað fjórum sinnum. Fram kemur í athugasemdum við frumvarpið að vinna við endurskoðun ákæruvaldsins standi enn yfir og ekki verði unnt að leggja fram frumvarp um framtíðarskipan þess í tæka tíð og því sé nauðsynlegt að fresta enn gildistöku laganna hvað varðar embætti héraðssaksóknara þar til fyrir liggur niðurstaða um fyrirkomulag ákæruvaldsins.

Nefndin tekur undir þessi sjónarmið en áréttar mikilvægi þess að þeirri vinnu verði hraðað svo að ekki komi til frestunar að nýju. Nefndin leggur til að frumvarpið verði samþykkt óbreytt.

Undir álitið rita hv. þingmenn Unnur Brá Konráðsdóttir, Páll Valur Björnsson, Líneik Anna Sævarsdóttir, Elsa Lára Arnardóttir, Guðbjartur Hannesson, Helgi Hrafn Gunnarsson og Bjarkey Gunnarsdóttir.

Fjarverandi við afgreiðslu málsins voru hv. þingmenn Jóhanna María Sigmundsdóttir og Vilhjálmur Árnason.