144. löggjafarþing — 19. fundur,  15. okt. 2014.

framhaldsskólar.

214. mál
[16:36]
Horfa

mennta- og menningarmálaráðherra (Illugi Gunnarsson) (S):

Virðulegi forseti. Hér verður mælt fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um framhaldsskóla, nr. 92/2008.

Frumvarpið felur í sér breytingar á gildandi lögum um framhaldsskóla sem sett voru árið 2008. Frumvarp þetta er samið í mennta- og menningarmálaráðuneytinu og hefur að geyma tillögur um breytingu á ákvæðum gildandi laga að því varðar rétt náms- og starfsráðgjafa til að sækja um launuð námsorlof, viðurkenningu á húsnæði einkarekinna framhaldsskóla, gjaldtökuheimild vegna rafrænna námsgagna og afhendingu byggingarlóða undir framhaldsskólabyggingar án kvaða eða gjalda og heimildir ráðherra til að kveða á um starfstíma framhaldsskóla með reglugerð.

Haft var samráð við Kennarasamband Íslands um það ákvæði í frumvarpinu er lýtur að rétti náms- og starfsráðgjafa til að sækja um launuð námsorlof. Að höfðu samráði við Félag íslenskra bókaútgefenda er lagt til að skólum verði með sérstöku leyfi ráðherra heimilað í tilraunaskyni að innheimta gjald fyrir rafrænt efni sem þeir ákveða að nýta í kennslu.

Þá er lagt til að höfðu samráði við ríkislögmann að framvegis skuli sveitarfélög leggja til lóðir undir framhaldsskóla án kvaða eða gjalda.

Í frumvarpi þessu er lagt til að lögum um framhaldsskóla verði breytt svo sem fram kemur í frumvarpstexta. Helstu breytingar sem felast í frumvarpinu eru þær að lagt er til í 1. gr. þess að náms- og starfsráðgjöfum í framhaldsskólum verði veittur réttur til að sækja um þau launuðu námsorlof sem þar eru veitt. Einnig er lagt til í 4. gr. frumvarpsins að skólum verði með sérstöku leyfi ráðherra heimilað að innheimta gjald fyrir rafrænt efni sem þeir ákveða að nýta í kennslu. Gert er ráð fyrir því að ráðherra veiti skólum slíka heimild í tilraunaskyni í takmarkaðan tíma, bundið við tilteknar námsgreinar. Um frekari útfærslu þess yrði nánar kveðið á í reglugerð.

Þá er lagt til, virðulegi forseti, að kennsla skuli fara fram í viðurkenndu skólahúsnæði sem uppfylli lög og reglugerðir þar að lútandi, samanber 2. gr. frumvarpsins.

Þessi breyting er lögð til með hliðsjón af ákvæðum laga og reglugerða um opinbert eftirlit með húsnæði þar sem atvinnustarfsemi fer fram, en ráðuneytið hefur ekki haft sérstakt eftirlit með húsnæði einkaskóla á framhaldsskólastigi umfram lögbundið eftirlit opinberra eftirlitsstofnana.

Enn fremur er lögð til í 5. gr. sú orðalagsbreyting að kveðið verði á um það að lóðir undir framhaldsskóla skuli sveitarfélög leggja til án kvaða eða gjalda.

Í núgildandi lögum er mælt fyrir um að lóðir skulu lagðar til án endurgjalds. Verður þannig horfið til þess orðalags sem var í sambærilegu ákvæði eldri laga nr. 80/1996, enda verður ekki séð af frumvarpi til núgildandi laga um framhaldsskóla né öðrum lögskýringargögnum að vilji löggjafans hafi staðið til þess að gera þá breytingu að ríkið skyldi framvegis greiða gatnagerðargjöld af umræddum lóðum.

Að lokum er í 3. gr. frumvarps þessa lagt til að ráðherra verði heimilt að mæla fyrir um starfstíma framhaldsskóla með reglugerð. Þessi grein frumvarpsins á rætur sínar að rekja til kjarasamninga sem gerðir voru síðastliðið vor.

Virðulegi forseti. Í frumvarpi þessu er meðal annars lagt til í 1. gr. að náms- og starfsráðgjöfum í framhaldsskólum verði veittur réttur til að sækja um þau launuð námsorlof sem þar eru veitt. Telja verður að staða þeirra hafi ekki fylgst að í lögum og kjarasamningum þegar litið er til réttar félagsmanna Kennarasambands Íslands í framhaldsskólum til að sækja um launuð námsorlof. Ekki er gert ráð fyrir því að sú breyting hafi í för með sér kostnaðarauka fyrir ríkissjóð vegna fjölgunar námsorlofa.

Hvað varðar 4. gr. frumvarpsins hefur rafrænt námsefni smám saman verið að ryðja sér til rúms í framhaldsskólum hér á landi. Hér er því lagt til að skólum verði með sérstöku leyfi ráðherra heimilað að innheimta gjald fyrir rafrænt efni sem þeir ákveða að nýta í kennslu. Gert er ráð fyrir því að ráðherra veiti skólum slíka heimild í tilraunaskyni í takmarkaðan tíma, eins og áður var sagt, bundið við tilteknar námsgreinar.

Með framangreindri breytingu er þess vænst að fjölbreytni í útgáfu rafræns námsefnis muni aukast til muna og verð á útgefnu námsefni muni lækka með hagnýtingu og nýrri tækni. Þar með opnast nemum greiður aðgangur að fjölbreyttu og nútímalegu námsefni á lægra verði, þeim og skólastarfinu til hagsbóta.

Virðulegi forseti. Ég legg það til að að umræðu lokinni verði málinu vísað til hv. allsherjar- og menntamálanefndar.