144. löggjafarþing — 23. fundur, 22. okt. 2014.
Ábyrgðasjóður launa.
105. mál
Virðulegur forseti. Ég vildi bara vekja athygli á þeim atkvæðagreiðslum sem við förum hér í gegnum, að í þessum málum erum við öll á þinginu Evrópusinnar, þ.e. allir eru sammála um að Ísland skuli heyra undir evrópska löggjöf og eru nú uppteknir við að samþykkja það í þingsalnum.
Sumir vilja taka þátt í að búa þá löggjöf til, aðrir vilja bara þiggja hana ómengaða frá Evrópu.