144. löggjafarþing — 23. fundur,  22. okt. 2014.

aðgerðaáætlun til að efla fjarheilbrigðisþjónustu.

27. mál
[19:02]
Horfa

Flm. (Björt Ólafsdóttir) (Bf):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar um aðgerðaáætlun til þess að efla fjarheilbrigðisþjónustu. Flutningsmenn eru allir þingmenn Bjartrar framtíðar auk þingmanna úr öllum öðrum flokkum.

Tillagan hljóðar svo:

„Alþingi ályktar að fela heilbrigðisráðherra að setja fram aðgerðaáætlun til eflingar fjarheilbrigðisþjónustu svo bjóða megi landsmönnum, hvar sem þeir eru í sveit settir, fjölbreytta, skilvirka og örugga heilbrigðisþjónustu.

Ráðherra upplýsi Alþingi fyrir 1. maí 2015 um tímasetta aðgerðaáætlun.“

Hvað er fjarheilbrigðisþjónusta? Það er ástæða til þess að fara vel yfir það. Fjarheilbrigðisþjónusta er ýmis þjónusta sem veitt er með fjarskiptum og rafrænum hætti. Slík þjónusta hefur rutt sér til rúms víða um heim undanfarna áratugi með góðum árangri. Ætla má að ávinningur af öflugri fjarheilbrigðisþjónustu hér á landi verði umtalsverður. Með henni er unnt að mæta betur þörfum fólks auk þess sem hún bætir aðgengi landsmanna að öruggri heilbrigðisþjónustu. Þá bregst fjarheilbrigðisþjónusta við manneklu, sérstaklega á stöðum þar sem starfsmannaskipti eru tíð. Þjónustuformið eykur hagkvæmni í rekstri og eflir skilvirkni í nýtingu starfsfólks. Þá dregur þetta form þjónustu úr kostnaði vegna ferða notenda sem og heilbrigðisstarfsfólks. Þjónustan styrkir nákvæma skráningu heilbrigðisupplýsinga og er mjög ákjósanlegur kostur til þess að efla heilbrigðisþjónustu hér á landi og er einnig árangursrík leið til þess að efla lýðheilsu.

Dæmi um einfalda útgáfu fjarheilbrigðisþjónustu er ráðgjöf heilbrigðisstarfsmanna í gegnum síma og dæmi um mjög flókna fjarheilbrigðisþjónustu er skurðaðgerð með hjálp vélmenna sem stýrt er af sérfræðingum sem geta verið staddir hver í sínum heimshlutanum.

Heilbrigðisstarfsfólk hefur undanfarna áratugi kynnt stjórnvöldum gildi fjarskiptatækni í heilbrigðis- og velferðarþjónustu. Víða um heim hafa um áratugaskeið verið þróaðar aðferðir til þess að veita örugga og skilvirka heilbrigðisþjónustu í gegnum síma sem er hentugasta form fjarskiptatækni. Stuðningur og ráðgjöf í gegnum síma er ómetanlegur, bætir gæði meðferðar, bætir aðgengi að þjónustu og dregur úr einangrun.

Í seinni tíð hafa vefmyndavélar komið að góðu gagni við margs konar þjónustu, t.d. geðheilbrigðisþjónustu. Gerðar hafa verið tilraunir með nýtingu snjallsíma til að fylgjast með og veita ráðgjöf eftir skurðaðgerðir. Allar þessar leiðir lofa mjög góðu og er full ástæða til þess að ætla að hér á landi geti nýting fjarskiptatækni verið mjög ákjósanlegur kostur til þess að efla þjónustuna sem fyrir er.

Ég sé að ég hef aðeins hoppað yfir, hæstv. forseti, en held áfram og ætla aðeins að tala um fjarheilbrigðisþjónustu fyrir dreifðari byggðir.

Á Grænlandi eru sérstök fjarheilbrigðisþjónustutæki lykiltæki lækninga og sjúkdómsgreininga á fámennum og einangruðum svæðum. Þau eru staðsett á hverju svæði með 50 íbúa og eru auðveld í notkun. Svokallaðir fjarendar eru þannig staðsettir um allt land og öllum erindum í gegnum þá er stýrt til Nuuk og Narsarsuaq áður en beiðni er send áfram. Á stærri og fjölmennari stöðum eru læknar sem sinna fólki á staðnum sem og í gegnum fjarfundabúnað. Hefur það leitt til betri nýtingar á tíma og aukinnar afkastagetu. Kostnaður vegna ferða á milli staða minnkaði verulega eftir að fjarheilbrigðistæknin var tekin í notkun á Grænlandi.

Í Bretlandi hefur fjarheilbrigðisþjónusta einnig verið nýtt með góðum árangri. Þar kom til dæmis í ljós að fjarheilbrigðisþjónusta varðandi meðferð eftir bruna skilaði aukinni skilvirkni og að biðtíminn styttist verulega.

Þá að Íslandi. Fjarskiptatækni hefur fram til þessa að einhverju leyti verið nýtt í geðlækningum hér á landi en það frumkvæði hefur að mestu verið einstakra sérfræðinga, t.d. sérfræðinga á Austurlandi, og ljóst er að kerfisbundið er hægt að nýta tækni nútímans mun betur til þess að mæta þörfum fólks til sálar- og geðlækninga. Þar liggja mikilvæg tækifæri til þess að sinna þörf og auka hagræði í heilbrigðisþjónustu

Á heilsugæslustöð Kirkjubæjarklausturs hefur á undanförnum missirum verið starfrækt fjarheilbrigðisþjónusta, með þar til gerðum tækjum og aðferðum, með einkar góðum árangri.

Í áranna rás hefur oft ekki verið hægt að manna stöðu héraðslæknis á Kirkjubæjarklaustri að fullu og hafa skammtímaúrræði verið dýr og mun það ekki vera einsdæmi á Íslandi. Skaftárhreppur er fámennt, einangrað og víðfeðmt hérað, íbúafjöldi er um 450 manns en yfir sumarmánuði margfaldast íbúafjöldinn. Næsta þorp, Vík í Mýrdal, er í 70 km fjarlægð. Heilbrigðisstofnun Suðurlands er í 210 km fjarlægð í vesturátt og svo er Landspítalinn í tæplega 300 km fjarlægð.

Á Klaustri og í Vík er fjarheilbrigðisþjónustutæki sem er kallað Agnes og er það staðsett á heilsugæslustöðinni á Kirkjubæjarklaustri og eftir því sem er best vitað er þetta eina tækið sinnar tegundar á Íslandi, en það samanstendur meðal annars af eyrna-, háls- og augnskoðunartæki, hjartalínuriti, öndunarmæli, rafrænni hlustunarpípu, lífsmarkamæli sem skráir jafnóðum púls, blóðþrýsting, hita og súrefnismettun, og svo er líka stafræn kvikmyndavél á þessu tæki sem gerir mögulegt að sinna sjúklingum á rauntíma. Læknar og hjúkrunarfræðingar á Kirkjubæjarklaustri mynda samhent teymi og nýta tæknina til hægðarauka og öryggis fyrir sjúklinga sína. Þannig er þeim kleift að senda flóknar upplýsingar um ástand sjúklings fljótt og auðveldlega til sérfræðilækna sem eru fjarstaddir, t.d. ef þeir eru á vettvangi einhvers staðar, það verður kannski slys á vegum úti og þá getur hjúkrunarfræðingur sent ýmsar upplýsingar sem þarf til læknis sem er staddur á heilsugæslustöðinni eða heima hjá sér. Þetta er alltaf verið að gera á Klaustri.

Á Kirkjubæjarklaustri er læknir á heilsugæslustöðinni aðra hverja viku á 24 klst. vakt, en hjúkrunarfræðingur er til staðar alla virka daga ársins á dagvinnutíma. Þá viku sem læknir heilsugæslunnar er fjarverandi er hjúkrunarfræðingur á vakt 24 klst. og getur haft stuðning eða samráð við fastalækni stöðvarinnar eða þá næsta heilsugæslulækni sem er í Vík og nýtir þannig fjarheilbrigðistækið í þeim samskiptum eftir því sem þarfir sjúklinganna segja til um. Áður, þegar læknir var ekki staðsettur á stöðinni, fóru samskipti á milli læknis og hjúkrunarfræðings mikið til fram í gegnum síma og faxtæki eða þá að sjúklingar þurftu að leita til heilsugæslunnar í Vík í Mýrdal. Samskiptin eru mun nákvæmari og áreiðanlegri nú en áður en fjarheilbrigðisþjónustutækið kom á staðinn.

Herra forseti. Fjarheilbrigðisþjónusta er ekki ný af nálinni og raunar hefur mikið verið um hana rætt í meira en 20 ár hér á landi. Þessi hugmynd er ekki ný, hún hefur komið fram í mörgum skýrslum hjá mörgum heilbrigðisráðherrum og í ýmissi stefnumótun. Það er raunar skrýtið að við séum ekki búin að hrinda henni betur í framkvæmd. Aðrar þjóðir hafa náð miklum árangri með notkun fjarheilbrigðisþjónustu og okkur er auðvitað ljóst að Íslendingar sem búa í stóru landi með dreifðar byggðir hafa margt að vinna með öflugri fjarheilbrigðisþjónustu. Þetta er ekki eitthvað sem mér dettur í hug eða einhverjum öðrum, það eru rannsóknir sem styðja þetta og hafa sýnt að með notkun á þessum aðferðum og tækni eykst öryggi sjúklinga, gæði þjónustunnar verða meiri og síðast en ekki síst er hagkvæmnin í rekstri meiri. Hvernig svo sem á málið er litið er þetta, ef ég má sletta, „win win“ fyrir alla.

Með tillögu þessari er lagt til að ráðherra grípi til aðgerða til þess að styrkja fjarheilbrigðisþjónustu og að hann kynni Alþingi eigi síðar en 1. maí nk. tímasetta aðgerðaáætlun um til hvaða aðgerða verður gripið og hvenær. Ef það er vilji Alþingis að mæta fjölbreyttri þörf fólks fyrir heilbrigðisþjónustu, samtímis því að gera fólki kleift að búa og starfa um allt Ísland, er aðferðafræði fjarheilbrigðisþjónustu ákjósanlegur kostur til þess að koma til móts við þær forsendur á hagkvæman og öruggan hátt.