144. löggjafarþing — 26. fundur,  3. nóv. 2014.

skráning tjónabifreiða og eftirlit.

151. mál
[16:27]
Horfa

innanríkisráðherra (Hanna Birna Kristjánsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Ég ítreka þakkir til fyrirspyrjanda og hv. þingmanns. Eins og ég nefndi í svari mínu áðan er margt í þessu sem hugsanlega má gera betur. Það sem hv. þingmaður nefnir er auðvitað brot á þeim reglum sem við fórum yfir. Ég skal sannarlega láta taka það til sérstakrar skoðunar í ráðuneytinu og upplýsa hv. þingmann um það.