144. löggjafarþing — 30. fundur,  11. nóv. 2014.

breyting á starfsáætlun.

[13:33]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Forseti tilkynnir tvær breytingar á starfsáætlun:

Í fyrsta lagi mun fyrirhuguð 2. umr. fjárlaga 2015 frestast um viku. Gert hafði verið ráð fyrir að hún yrði fimmtudaginn 20. nóvember en hún verður fimmtudaginn 27. nóvember.

Í öðru lagi er gerð breyting á þingfundum í febrúar. Þingfundur 19. febrúar er felldur niður vegna vetrarfrís í grunnskólum. Í staðinn verður bætt við þingfundadegi viku seinna þannig að þingfundur verður haldinn föstudaginn 27. febrúar.