144. löggjafarþing — 33. fundur,  17. nóv. 2014.

vinnubrögð í fjárlaganefnd.

[15:07]
Horfa

Brynhildur Pétursdóttir (Bf):

Virðulegi forseti. Ég tek undir það sem hér hefur komið fram. Mér finnst mikilvægt að ræða þessi mál þannig að ekki standi út af stórar spurningar. Varðandi bókhaldsbixið sem snýr að Seðlabankabréfinu þá er mörgum stórum spurningum ekki enn þá svarað þannig að ég tek undir það sem hér hefur komið fram.