144. löggjafarþing — 37. fundur,  27. nóv. 2014.

fjáraukalög 2014.

367. mál
[13:50]
Horfa

Þórunn Egilsdóttir (F):

Hæstv. forseti. Ég vil taka undir með þeim sem hér hafa talað. Ég fagna því að hér er verið að leiðrétta og styrkja rekstrargrundvöll Háskólans á Akureyri þar sem gríðarlega gott og mikilvægt starf er unnið sem styrkir byggðirnar úti um landið.

Ég fagna því að við séum hér að leiðrétta þann órétt sem viðgengist hefur undanfarin ár.