144. löggjafarþing — 37. fundur,  27. nóv. 2014.

visthönnun vöru sem notar orku.

98. mál
[18:43]
Horfa

Frsm. atvinnuvn. (Þorsteinn Sæmundsson) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið sem ég tek sem meðsvar en ekki andsvar. Eins og hv. þingmaður minntist á áttum við nokkra orðasennu um þetta mál við 2. umr. Það er nú í eðli okkar framsóknarmanna að hlusta á viturra manna ráð þegar þau eru gefin. Við gerðum það í þessu tilfelli og það gleður mig ef það greiðir framgang málsins.