144. löggjafarþing — 38. fundur,  28. nóv. 2014.

staða, stjórn og starfshættir þjóðkirkjunnar.

365. mál
[11:11]
Horfa

iðnaðar- og viðskiptaráðherra (Ragnheiður E. Árnadóttir) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir ábendingar um þingtíðindi, en ég get glatt hana með því að ég hafði nú þegar vitneskju um það að sú þjónusta væri til boða.

Varðandi starfsreglur þær sem hv. þingmaður spyr um þá hafa þær ekki verið settar enn, en á meðan þetta frumvarp er í þinglegri meðferð verður unnið að því að setja þær.