virðisaukaskattur o.fl.
Frú forseti. Hv. þingmaður nefndi að lágur virðisaukaskattur á matvöru væri ómarkviss og óskilvirk leið til tekjuöflunar. Þetta kemur fram í fjárlagafrumvarpinu á síðu 7. Samt sem áður stöndum við frammi fyrir því að þær heildarbreytingar sem er verið að gera í tekju- og útgjaldafrumvörpunum, jafnvel með því að fara úr 7% í 11% í virðisaukaskattinum í staðinn fyrir 7% í 12% eins og er lagt til núna af meiri hluta nefndarinnar, hv. formaður nefndarinnar sagði mér í dag að þetta muni hækka matvælaverð um 1–2%.
Eru til mótvægisaðgerðir? Já, það eru til mótvægisaðgerðir sem eru skilvirkar og þær eru að afnema tolla og kvóta á matvæli. Það kemur fram í nefnd sem tók þetta saman fyrir þáverandi forsætisráðherra, Geir H. Haarde, árið 2006 að það er engin aðgerð jafn árangursrík til að lækka matvöruverð og að draga verulega úr þeirri innflutningsvernd sem (Forseti hringir.) innlend búvöruframleiðsla nýtur o.s.frv.
Ef hægt væri að gera það og færa ígildi þeirrar verndar til búvöruframleiðenda í formi styrkja á móti, er það eitthvað sem þingmaðurinn væri tilbúinn að hugsa um?