144. löggjafarþing — 39. fundur,  2. des. 2014.

virðisaukaskattur o.fl.

2. mál
[22:49]
Horfa

Willum Þór Þórsson (F) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Þór Ólafssyni fyrirspurn hans. Hún snýr að því að koma með þá mótvægisaðgerð að lækka tolla á landbúnaðarafurðum og hvort ég sé tilbúinn til að skoða það. Já, alla daga, og sérstaklega á þeim vöruflokkum sem takmarkað framboð er af hér á landi. Við getum ekki vikist undan því í náinni framtíð að skoða það.