144. löggjafarþing — 41. fundur,  4. des. 2014.

störf þingsins.

[11:04]
Horfa

Steingrímur J. Sigfússon (Vg):

Herra forseti. Samkvæmt fréttum Ríkisútvarpsins í morgun sem hefur greinilega í höndum upplýsingar um væntanlegt frumvarp hæstv. ferðamálaráðherra um náttúrupassa er það frumvarp þannig útfært að frá og með næsta hausti, ef það næði fram að ganga, þyrftu Íslendingar að framvísa náttúrupassa á Þingvöllum og mundu sæta sektum ella ef svokallaðir náttúruverðir stæðu þá að því að vera á ferð um Þingvelli án sérstaks náttúrupassa.

Enn alvarlegri tel ég þó vera þá skýringu sem höfð er eftir ráðuneytinu að almannarétturinn eigi ekki við og í frumvarpinu sé þar af leiðandi ekki gengið á hann vegna þess að það sé áníðsla á stöðunum. Hvert er ráðuneytið að fara með þessari fráleitu túlkun sinni? Og hvar verðum við þá stödd? Hvað munu einkaeigendur á landi segja og gera ef túlkun umhverfisráðuneytisins varðandi jafnvel mesta helgistað þjóðarinnar stæðist, að vegna þess að hann sé undir álagi vegna heimsókna erlendra ferðamanna gildi almannarétturinn ekki gagnvart íslensku þjóðinni?

Ég verð að segja eins og er, herra forseti, að mér finnst þetta svo yfirgengilegt ef frumvarpið er eins og Ríkisútvarpið birtir í frétt í morgun, og við verðum að ætla að byggi á traustum heimildum enda upplýsir Ríkisútvarpið að það hafi upplýsingar um efni frumvarpsins, að það tekur engu tali. Ætlar enginn að standa upp og stoppa þessa vitleysu? Er enginn í stjórnarflokkunum sem hefur burði til þess að standa upp og segja: Nei, svona gera menn ekki?

Þetta er svo fráleitt að mér finnst það alvörumál að málið skuli vera þó komið jafn langt og raun ber vitni að þingflokkur Sjálfstæðisflokksins sé búinn að samþykkja þetta til framlagningar. Ég vil nú láta segja mér það þrisvar. Ég trúi því ekki. Auðvitað er bót í máli að Framsókn er að móast (Forseti hringir.) við, en við höfum nú dýrkeypta og bitra reynslu af því að hún lekur yfirleitt niður.