fjárlög 2015.
Virðulegi forseti. Ég hef svo sem ekki miklu við orð þingmannsins að bæta. Ég skildi þetta eins, ríkið hefur náttúrlega kostnað af hælisleitendum meðan þeir geta ekki unnið og eru á kostnað ríkisins að minnsta kosti að einhverju leyti. Ef hægt er að flýta ferlinu gæti ríkissjóður komið betur út. Ég vildi ekki hafa það eftir þingmanninum að fjárlaganefnd hefði gert mistök, hann verður að standa við það, en ég tók eftir því að hann gerði það í morgun og ég vona bara að svo hafi verið og þetta verði leiðrétt.
Ég tek líka fram að þegar ég var að hugsa um þetta áður en ég kom í ræðustól kom þetta mér í hug í framhaldi af því sem kom fram um flóttamennina og sem hv. þm. Helgi Hrafn Gunnarsson talaði um hér í gær, um þrjú börn sem þyrftu aðstoð á barnageðdeild, og hann tengdi það við tillögu minni hluta fjárlaganefndar um að auka um 50 milljónir þar inn. Mér fannst þetta vera innlegg í beinu framhaldi af því að geta þessa merka innleggs hv. þm. Össurar Skarphéðinssonar hér í morgun.