144. löggjafarþing — 45. fundur,  10. des. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[17:09]
Horfa

mennta- og menningarmálaráðherra (Illugi Gunnarsson) (S):

Virðulegi forseti. Ég er sammála hv. þm. Katrínu Jakobsdóttur um að hér sé á ferðinni mjög áhugavert og mikilvægt mál. Um er að ræða sjónlistabraut sem hefur notið vinsælda og hefur sýnt sig að standast vel faglegar kröfur, undirbúa nemendur vel á þessu sviði og ég vil segja að ég hef heilmiklar væntingar til áframhalds þessa náms á næstu árum.