144. löggjafarþing — 45. fundur,  10. des. 2014.

fjárlög 2015.

1. mál
[21:37]
Horfa

Helgi Hrafn Gunnarsson (P) (um fundarstjórn):

Virðulegi forseti. Ég vil taka undir kvartanir þeirra sem hér töluðu á undan mér varðandi fjarveru hæstv. forsætisráðherra en ég vil þó taka það fram að ég er alla vega ekki hissa. Þvert á móti hefði ég orðið mjög hissa ef hann hefði mætt allt í einu.