144. löggjafarþing — 47. fundur,  12. des. 2014.

virðisaukaskattur o.fl.

2. mál
[12:04]
Horfa

Steingrímur J. Sigfússon (Vg):

Herra forseti. Við styðjum þær breytingar að fólksflutningar í afþreyingarskyni innan ferðaþjónustunnar sem og að starfsemi ferðaskrifstofa falli undir virðisaukaskattsskyldu héðan í frá. Þetta er liður í þeim breytingum þannig að við munum greiða þessu og samkynja ákvæðum atkvæði eftir því sem það kemur fyrir hér í atkvæðagreiðslunni.