144. löggjafarþing — 48. fundur,  12. des. 2014.

almannatryggingar o.fl.

459. mál
[15:10]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Þórunn Egilsdóttir) (F) (andsvar):

Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Helga Hjörvar fyrir ágæta ábendingu. Málin sem við ræðum hér eru gríðarlega flókin og umsvifamikil og það er mikil vinna að fara í gegnum það allt eins og við þekkjum öll hérna inni. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ágætar ábendingar og tek þær með mér sem veganesti í þá vinnu sem fram undan er.