virðisaukaskattur o.fl.
Hæstv. forseti. Ef við hefðum einhverjar rannsóknir á því hvort sykurneysla hafi minnkað við upptöku sykurskattsins væri það auðvitað gott og við gætum vitnað í þær en svo er ekki að mínu mati. Ég þekki ekki til þess að neitt hafi verið gert. Ég er nokkuð viss um að framleiðendur vöru sem hafa notað mikinn sykur hugsa sig vel um. Ég held að það hafi meðal annars verið hvati hjá Mjólkursamsölunni. Þeir voru stærstu greiðendur sykurskatts í landinu með um 120 millj. kr., ef ég man rétt. Í eðlilegum rekstri hljóta forsvarsmenn þess fyrirtækis að skoða þá leið að minnka sem mest notkun sykurs í mjólkurafurðum sínum. Ætli það sé þá ekki farið að skila sér, ætli þeir hugsi ekki sem svo: Hvernig getum við minnkað, hvar getum við minnkað til að borga minni sykurskatt? (Gripið fram í.)
Ég er alveg viss um það að neysla á gosdrykkjum og svoleiðis sulli hafi líka minnkað við þetta, við 21 kr. hækkun á gosdrykkjum, á einum lítra, eða 42 kr. af einni tveggja lítra flösku. Þá hljóta menn að hugsa að þetta sé vara sem hægt er að sniðganga. Að því leytinu til hefur skatturinn haft þau áhrif að fólk hugsar meira um að sleppa þessum vörum.