144. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2014.

varamenn taka þingsæti.

[10:31]
Horfa

Forseti (Einar K. Guðfinnsson):

Borist hefur bréf frá formanni þingflokks Framsóknarflokksins um að Gunnar Bragi Sveinsson, 1. þm. Norðvest., geti ekki sinnt þingmennsku á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Framsóknarflokksins í kjördæminu, Sigurður Páll Jónsson.

Sigurður Páll Jónsson hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa að nýju.

Einnig hefur borist bréf frá formanni þingflokks Sjálfstæðisflokksins um að Vilhjálmur Bjarnason, 9. þm. Suðvest., geti ekki sinnt þingmennsku á næstunni. Í dag tekur því sæti á Alþingi 1. varamaður á lista Sjálfstæðisflokksins í kjördæminu, Óli Björn Kárason.

Óli Björn Kárason hefur áður tekið sæti á Alþingi og er boðinn velkominn til starfa að nýju.