144. löggjafarþing — 50. fundur,  16. des. 2014.

virðisaukaskattur o.fl.

2. mál
[11:26]
Horfa

Birgitta Jónsdóttir (P):

Forseti. Píratar eru í sjálfu sér ekki á móti því að skattkerfið sé einfaldað en þetta er alls ekki einföldun á því. Hér erum við komin inn í víxlverkandi aðferðafræði til að bæta þeim upp sem harðast verða fyrir þessum matarskatti og menningarskatti, sér í lagi matarskattinum, alveg nákvæmlega eins og fyrrverandi ríkisstjórn gerði til að hlífa þeim sem minnst máttu sín. Ég velti fyrir mér hvort við séum hér með hægri stjórn eða einhvers konar vinstrilíki.