144. löggjafarþing — 51. fundur,  16. des. 2014.

frestun á fundum Alþingis.

471. mál
[21:53]
Horfa

forsætisráðherra (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (F):

Virðulegur forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar um samþykki til frestunar á fundum Alþingis samkvæmt 1. mgr. 23. gr. stjórnarskrárinnar.

Tillagan er svohljóðandi:

„Alþingi ályktar að veita samþykki til þess að fundum þingsins verði frestað frá 16. desember 2014 eða síðar, ef nauðsyn krefur, til 20. janúar 2015.“

Tillagan skýrir sig sjálf.