144. löggjafarþing — 62. fundur,  3. feb. 2015.

almenn hegningarlög.

436. mál
[21:52]
Horfa

Flm. (Björt Ólafsdóttir) (Bf):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á almennum hegningarlögum, nr. 19/1940, eða um bann við hefndarklámi. Flutningsmenn eru auk mín Brynhildur Pétursdóttir, Guðmundur Steingrímsson, Óttarr Proppé, Páll Valur Björnsson og Róbert Marshall.

Með frumvarpinu er lagt til að hefndarklám verði gert refsivert. Hefndarklám felur í sér dreifingu eða birtingu á myndum eða myndskeiðum án leyfis þess sem á myndefninu er og sem er til þess fallið að valda viðkomandi tjóni eða vanlíðan eða er lítilsvirðandi fyrir hann. Oft er um að ræða nektarmyndir eða bersýnilega kynferðislegar ljósmyndir og/eða myndskeið af einstaklingi. Hefndarklám dregur nafn sitt af því að myndefninu er stundum dreift í hefndarskyni að loknu ástarsambandi, eins getur verið um að ræða dreifingu á myndefni sem einstaklingur hefur sent frá sér í góðri trú og þá er það vel þekkt að hefndarklámmyndir eru samsettar, tilbúnar og þannig óekta en þannig úr garði gerðar að augað nemur ekki fölsunina.

Hefndarklámsmyndir og -myndskeið eru mestmegnis á netinu. Netið er lýðræðisvettvangur 21. aldarinnar og það er mikilvægt tæki í upplýsingasamfélagi nútímans og til þess að einstaklingar geti nýtt tjáningarfrelsi sitt. Það hefur þó einnig sínar myrku hliðar, m.a. af því að á netinu verða einstaklingar, einkum konur, oft fyrir mjög kerfisbundnu ofbeldi. Aðgengi að netinu er almennt og auðvelt og hefndarklám sem dreift er á netinu getur verið í dreifingu svo árum skiptir. Slíkt er í raun síendurtekið ofbeldi gegn þolandanum og gróft brot á friðhelgi einkalífs hans. Brýnt er að skilaboð séu skýr til notenda netsins um að þegar þeir fá mynd í hendurnar þá eigi þeir hana ekki og hafi ekki heimild til þess að dreifa henni áfram. Á þetta ekki síst við þegar um er að ræða mynd eða myndskeið sem augljóst er af efninu að ekki er ætlað til dreifingar, svo sem þar sem nekt kemur við sögu eða kynferðislegir tilburðir eða ástand sem augljóst er að einstaklingurinn á myndinni mundi telja einkamál sitt og ekki vilja að alþjóð eða heimurinn sjái. Mikilvægt er að fólk taki ábyrgð og taki ekki þátt í að dreifa myndefni sem þessu.

Síðustu missirin hefur mikil umræða verið um hefndarklám, bæði hér heima og erlendis. Í apríl síðastliðnum birtist m.a. frétt þess efnis að á erlendri spjallsíðu væru íslenskir karlmenn að skiptast á myndum af fáklæddum íslenskum ungum stúlkum, þær yngstu voru á fjórtánda aldursári. Fram kom að hundruð mynda af íslenskum stúlkum væru komnar inn á spjallsíðuna. Nýrri fréttir um birtingu hefndarkláms og því ofbeldi berast okkur núna nær vikulega, og okkur eru auðvitað í fersku minni þær fréttir sem bárust okkur í síðustu viku um hefndarklám og heimilisofbeldi, atvik sem virðist ekki vera hægt að koma neinum böndum á. Þá virðist raunin líka vera sú að konum í áberandi stöðum í samfélaginu, t.d. í kvikmyndaleik og jafnvel stjórnmálum, hefur verið að því er virðist kerfisbundið ógnað með dreifingu á myndefni af þeim sem er til þess fallið að lítillækka og kúga. Alheimssamfélagið hefur brugðist við, umræðan hefur verið mikil og niðurstaðan er sú að ekkert annað en kynferðisafbrot er um að ræða.

Stór hluti fórnarlamba hefndarkláms er ungt fólk og jafnframt virðist hluti dreifenda hefndarkláms vera úr sama hópi. Mikilvægt er að fræða ungt fólk um áhrif þess að dreifa hefndarklámi og alvarleika slíkra brota. Ekki er nægilegt að fræða einungis um lagaleg áhrif þess, verði frumvarp þetta samþykkt, þó að slíkt muni augljóslega varpa ljósi á alvarleika gerninga sem þessara. Einnig er brýnt að fræða um sálræn áhrif þess á þolendur. Koma þarf öllum, þar á meðal börnum og ungu fólki, í skilning um hversu alvarlegt brot slík dreifing er og hversu víðfeðm og djúpstæð áhrif hún getur haft. Þá þarf að reyna að tryggja að þeir sem senda myndir frá sér í grandvaraleysi, það þarf að upplýsa það fólk og reyna að gera fólki grein fyrir að slíkar myndir geta farið í dreifingu en með því að gera dreifingu myndefnisins refsinæma minnka væntanlega líkur á því. Nauðsynlegt er þó jafnframt að tryggja að ábyrgðinni og sökinni sé ekki skellt á þolendur hefndarkláms, eins og oft vill verða um þolendur kynferðisofbeldis, heldur á gerendur, skömmin á heima hjá þeim sem dreifa myndefninu og fremja brotin. Frumvarp þetta er fyrsta skrefið í þá átt að tryggja að sökin lendi á þeim sem hana eiga að bera, dreifendum hefndarklámsins, og er skýr skilaboð til þolenda glæpa af þessu tagi að mál þeirra séu tekin alvarlega sem og að kerfið standi með þolendum og gegn þeim sem brotið hafa á þeim.

Birting nektarmynda í óþökk þeirra einstaklinga sem á þeim er hefur aukist gríðarlega en hér á landi hefur reynst erfitt að heimfæra slíkt athæfi undir ákvæði almennra hegningarlaga, nr. 19/1940. Birting og dreifing myndefnis af þessu tagi getur varðað við ákvæði 233. gr. b laganna þar sem kveðið er á um að sá sem móðgar eða smánar maka sinn eða fyrrverandi maka, barn sitt eða annan mann sem er nákominn geranda og verknaður verður talinn fela í sér stórfelldar ærumeiðingar skuli sæta fangelsi allt að tveimur árum. Ákvæðið er þó ýmsum takmörkunum háð enda nær það einungis til maka, fyrrverandi maka eða nákominna einstaklinga en ekki annarra aðila eða þeirra sem dreifa eða birta myndefnið. Þá er ákvæðið tiltölulega nýlegt í hegningarlögum, frá 2006, og þó svo að nokkur hefndarklámsmál séu til rannsóknar á grundvelli þess hefur það ekki verið grundvöllur dóms í hefndarklámsmáli.

Birting myndefnis af þessu tagi getur einnig varðað við 229. gr. laganna þar sem kveðið er á um að hver sem skýrir opinberlega frá einkamálefnum annars manns, án þess að nægar ástæður séu fyrir hendi er réttlæti verknaðinn, skuli sæta sektum eða fangelsi allt að einu ári. Þetta ákvæði, líkt og 233. gr. b, er í XXV. kafla laganna sem snýr að ærumeiðingum og brotum gegn friðhelgi einkalífsins. Hefndarklám er því marki brennt að um er að ræða gróft brot gegn friðhelgi einkalífsins sem einnig telst til kynferðisafbrots. Í XXII. kafla hegningarlaga þar sem fjallað er um kynferðisbrot eru ákvæði sem oft hefur verið vísað til í umræðunni um hefndarklám. Samkvæmt 2. mgr. 210. gr. hegningarlaga varðar það allt að sex mánaða fangelsi að útbýta eða dreifa klámmyndum eða öðrum slíkum hlutum. Í 3. mgr. 210. gr. er kveðið á um að það varði sömu refsingu að láta slíka hluti af hendi við unglinga yngri en 18 ára. Í mörgum tilvikum eru fórnarlömb hefndarkláms einstaklingar undir 18 ára aldri. Slík myndbirting fellur undir barnaklám og er refsiverð með allt að tveggja ára fangelsi í samræmi við 210. gr. a hegningarlaga.

Þegar hefndarklám er nýtt til þess að hóta, kúga eða neyða þann sem á myndefninu er til greiðslna, kynferðislegra athafna eða annars slíks getur verið um að ræða brot á ýmsum ákvæðum hegningarlaga.

Myndbirting sem fellur undir hefndarklám getur einnig í einhverjum tilvikum varðað við höfundalög, nr. 73/1972.

Þrátt fyrir framangreind ákvæði er ekki um að ræða skýr lagaákvæði sem gera hefndarklám refsinæmt. Með frumvarpi þessu er því lagt til að slíkum ákvæðum verði bætt við hegningarlög og tekinn af allur vafi um alvarleika brota þessara.

Aðeins þá að löggjöf annarra landa og hvað önnur lönd og ríki hafa nú þegar gert. Fá lönd hafa gripið til sérstakrar löggjafar enn sem komið er þó að þörfin sé vissulega brýn, en þetta er mikið í umræðunni núna í mörgum löndum. Mörg ríki Bandaríkjanna hafa þegar gripið til lagasetningar og annars staðar á Norðurlöndunum virðist umræðan um hefndarklám hafa verið svipuð og hér á landi og kröfur um aðgerðir og breytingar á löggjöf eru orðnar háværar. Í Bretlandi er nú unnið að breytingum á löggjöf þar sem dreifing hefndarkláms er flokkuð sem kynferðisofbeldi. Í Danmörku varðar það sekt eða allt að sex mánaða fangelsi að dreifa með óréttmætum hætti frásögnum eða myndum af einkalífi annars einstaklings eða myndum af viðkomandi við aðstæður sem augljóslega eiga ekki að koma fyrir almenningssjónir. Í Finnlandi er meðal annars kveðið á um refsinæmi þess að dreifa upplýsingum sem brjóta gegn friðhelgi einkalífs. Varðar það sekt að dreifa í fjölmiðli eða veita á annan hátt stórum hópi fólks aðgang að vitneskju, vísbendingu eða mynd sem varðar einkalíf manns þannig að það valdi tjóni eða vanlíðan eða sé lítilsvirðandi fyrir þolandann. Í Noregi er líka verið að skoða löggjöf af þessu tagi og í Svíþjóð, og í Bretlandi, eins og ég nefndi áðan, liggur svipað mál og þetta fyrir þinginu núna og þar er kveðið skýrt á um að hefndarklám sé ekki í raun ærumeiðing heldur kynferðisbrot.

Með frumvarpi þessu eru lagðar til tvær breytingar á hegningarlögum, nr. 19/1940. Annars vegar er lagt til að dreifing og birting hefndarkláms verði skilgreind sem kynferðisbrot í XXII. kafla laganna þegar um er að ræða birtingu eða dreifingu myndefnis eða myndskeiða sem sýnir einstakling nakinn eða á kynferðislegan hátt í óþökk þess sem er á myndunum. Hins vegar er lagt til að við XXV. kafla laganna um ærumeiðingar og brot gegn friðhelgi einkalífs bætist ákvæði sem geri birtingu eða dreifingu refsiverða þegar hún er til þess fallin að valda þolanda tjóni eða vanlíðan eða er lítilsvirðandi fyrir þolandann.

Dreifing og birting hefndarkláms þar sem myndefni sýnir einstakling nakinn eða á kynferðislegan hátt er vissulega til þess fallið að valda þolanda tjóni eða vanlíðan eða vera lítilsvirðandi fyrir þolandann. Ekki þótti þó nægjanlegt að setja einungis ákvæði um bann við hefndarklámi í XXV. kafla laganna og kveða á um að slíkt sé brot á friðhelgi einkalífs heldur teljum við einnig nauðsynlegt og brýnt að skilgreina alvarlegustu birtingarmyndir hefndarkláms sem kynferðisbrot.

Í tengslum við umræðu um bann við hefndarklámi hefur oft komið upp umræða um tjáningarfrelsi þeirra sem dreifa hefndarklámi. Þetta hefur einkum verið rætt í Bandaríkjunum, út af því að þar hafa, eins og áður sagði, mörg ríki sett þetta í lög, bannað hefndarklám. Það er auðvitað mikilvægt að standa vörð um tjáningarfrelsið sem er ein af grunnstoðum lýðræðisins eða eins og segir í 2. mgr. 73. gr. stjórnarskrárinnar verða tjáningarfrelsinu aðeins settar „skorður með lögum í þágu allsherjarreglu eða öryggis ríkisins, til verndar heilsu eða siðgæði manna eða vegna réttinda eða mannorðs annarra, enda teljist þær nauðsynlegar og samrýmist lýðræðishefðum.“ Með þessu frumvarpi er lagt til að tjáningarfrelsinu verði settar ákveðnar skorður með lögum til þess að vernda bæði réttindi annarra og mannorð þeirra. Þegar slíkar skorður eru settar á neytingu ákveðinna stjórnarskrárbundinna réttinda til þess að verja réttindi annarra er mikilvægt að ekki sé gengið of langt og nauðsynlegt er að fram fari ákveðið hagsmunamat. Þegar horft er til hagsmuna aðila mála sem þessara er ljóst að hvorki sá sem dreifir hefndarklámi né almenningur hefur af því sérstaka hagsmuni en verulega er brotið á friðhelgi einkalífs þess sem verður fyrir slíkum verknaði og rétti hans til verndar persónuupplýsinga. Lagasetning sem þessi setur því augljóslega réttlætanlegar og nauðsynlegar hömlur á tjáningarfrelsi til þess að tryggja mun ríkari hagsmuni.

Virðulegi forseti. Ég ætla ekki að hafa þetta lengra í kvöld, það eru önnur þingmannamál sem bíða afgreiðslu og ég vil endilega flýta fyrir því að þau komist á dagskrá, mörg, eins og mitt mál, hafa beðið lengi. En ég þakka kærlega fyrir að fá að mæla fyrir frumvarpinu í kvöld og ég vonast til og veit að þingið tekur vel í málið, það hef ég heyrt frá mínum samstarfsmönnum þvert á flokka að fólki þykir málið brýnt.

Ég vænti þess að málið fari til allsherjar- og menntamálanefndar og verði þar tekið fyrir sem fyrst.