félagsþjónusta sveitarfélaga.
Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Sigríði Ingibjörgu Ingadóttur fyrirspurnina og tek undir ýmislegt sem hún sagði. Hún beindi spurningu beint til mín og já, ég hef oft áhyggjur af því hvað verður um fólk, svo ég svari því alveg ærlega. En við þurfum að vita hvaða kerfi við erum að nota og hvaða leiðir við erum að fara. Ég held mig við að við eigum að reyna að virkja sem flesta einstaklinga í samfélaginu okkar. Þá aðallega út frá því að hver einstaklingur fái að njóta sín, hæfileikar hans, kunnátta hans og færni. Það styrkir hann, gerir hann hamingjusamari, sterkari og betri og gildari þjóðfélagsþegn, ef svo má segja.
Félagsþjónustan er fyrir þá sem ekki geta verið þátttakendur á vinnumarkaði af einhverjum ástæðum. Ef við höfum möguleika til að virkja fleiri til að vera þátttakendur, taka þátt í einhverjum virkniúrræðum, tel ég að við eigum að gera það á þeim forsendum sem ég taldi upp áðan. Ef það tekst ekki hlýtur einhver ástæða að vera fyrir því, einhver þröskuldur sem viðkomandi einstaklingur kemst ekki yfir og þá hljótum við að þurfa að grípa til úrræða og mæta þeim einstaklingi á þeim stað þar sem hann er með þeim björgum og þeim ráðum sem við höfum.
Ég held að við þurfum ekki að líta á þetta sem refsivönd af því netið á að halda og við höldum áfram að styrkja einstaklingana út í samfélagið.