144. löggjafarþing — 68. fundur,  18. feb. 2015.

útreikningur skuldaleiðréttingar og frestun nauðungarsölu.

[15:35]
Horfa

innanríkisráðherra (Ólöf Nordal) (S):

Virðulegi forseti. Ég hef ekki miklu við það að bæta sem ég sagði áðan, en vil að endingu þakka fyrirspyrjanda fyrir að vekja máls á þessu og halda mönnum við efnið. Leiðréttingin er gríðarlega mikilvæg og hefur verið atriði sem ríkisstjórnin hefur lagt mikla áherslu á.