144. löggjafarþing — 69. fundur,  24. feb. 2015.

sjávarútvegsmál.

[13:38]
Horfa

forsætisráðherra (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (F):

Virðulegur forseti. Ég þakka hvatninguna og árnaðaróskir í garð ríkisstjórnarinnar, þakka jafnframt það sem ég skildi sem yfirlýsingu hv. þingmanns um stuðning við það mikilvæga verkefni að tryggja á skýran og afdráttarlausan hátt í stjórnarskrá eignarhald þjóðarinnar á þessari auðlind.