144. löggjafarþing — 69. fundur,  24. feb. 2015.

afnám verðtryggingar.

[14:03]
Horfa

forsætisráðherra (Sigmundur Davíð Gunnlaugsson) (F):

Virðulegur forseti. Ég ítreka það sem ég sagði áðan, það er rangt hjá hv. þingmanni að hægt sé að tala um aðgerðaleysi þegar þvert á móti er verið að hrinda í framkvæmd gríðarlega stórum aðgerðum, aðgerðum sem byggja á tillögum sérfræðihóps um afnám verðtryggingar. Vinna við afnám verðtryggingar er í fullum gangi og algjörlega rangt að tala um aðgerðaleysi í því sambandi.