144. löggjafarþing — 71. fundur,  26. feb. 2015.

raforkulög.

305. mál
[13:59]
Horfa

Jón Gunnarsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Af þessu tilefni vil ég eingöngu benda á að þingmenn Sjálfstæðisflokksins í hv. umhverfisnefnd voru með fyrirvara við nefndarálitið sem lagt var fram. Þeir verða sjálfir að gera grein fyrir honum, ég mun ekki gera það.